Við erum staðsett inni í Faxatorgi (Faxafen 10, 2. hæð). Við erum aðeins opin þegar það eru bókunir. Stingdu uppá dagsetningu og tíma og við munum gera okkar besta til að uppfylla það.
Þetta er aukavinna hjá okkur þannig að auðveldast er að panta á eftirfarandi tímum:
mánudag til fimmtudags 17:00–22:00,
föstudagur 12:00–22:00,
laugardag til sunnudags frá 10:00–17:00
Það er hægt að bóka tíma utan hefðbundinna opnunartíma, en þar sem við erum aðeins á staðnum þegar bókun er í gangi, þá er best að gefa okkur svolítinn fyrirvara og reynum við okkar besta til að vera þar. Best er að bókun sé að minnsta kosti degi fyrirfram, til að auka líkurnar á að við séum laus.
Fyrir utanhús axarkast, þar sem við komum á grasblett að ykkar vali, þá heyrið þið í okkur með einhverri leið hér fyrir neðan
Til að bóka þá er hægt að senda með því að: bóka hér á síðunni, senda skilaboð á Facebook, hringja í síma 644-0456 eða senda póst á info@berserkir-axarkast.is. Axarkast og áfengi eiga ekki samleið – ef plana á stóran dag er best að byrja hér.