Berserkjamót

Næsta Berserkjamót í axarkasti verður haldið 12. maí 2019 hjá Berserkjum í Hjallahrauni 9 kl 16:00.

Keppnisgjaldið er 5.000 kr. og fer helmingurinn í verðlaunafé. Á miðvikudögum kl 19-21 eru æfingakvöld, gjaldið fyrir hverja æfingu er 2.000 kr en einnig er hægt að kaupa 10 skipti á 18.000 kr.

Það er öllum velkomið að taka þátt. Þeir sem hafa ekki kastað öxum áður og komast ekki á æfingakvöldin geta fengið kennslu fyrr um daginn þann 12. maí.

Til að greiða keppnisgjöldin er hægt að leggja inná reikning Berserkja 0133-26-013699 og kennitala 560218-0790. Senda kvittun á info@berserkir-axarkast.is með fullu nafni (eða kennitölu) keppanda sem skýringu. Einnig er hægt að greiða keppnisgjaldið á staðnum þegar komið er á æfingu. Keppisgjöld þarf að greiða í síðasta lagi viku fyrir mót eða 5. maí.

Skráningu er lokið