Laugardaginn 9.maí (11:00-13:00) byrjar deildarkeppni í axarkasti. Á 5 vikulegum æfingum klárum við 20 leiki (hver leikur 3x 5 köst). Staða í lok deildarinnar er notuð sem uppröðun í tvöfallda úrsláttarkeppni 13.júní.
Allur búnaður og kennsla til staðar. Þetta er fyrsta mótið í axarkasti í Faxatorgi þannig að verið þið með í að búa til skemmtilegan keppnishóp.
Nýr í axarkasti? – Velkomin
Notið deildarleikina 20 til að verða betri axarkastarar fyrir lokamótið. Verð fyrir öll 6 skiptin er einungis 12.000 kr.
Þeir sem komast ekki á æfingar á laugardögum geta haft samband og við reynum að finna aðra tíma.
Hægt er að greiða keppnisgjaldið á staðnum eða millifæra á reikning 0133-26-013699 og kennitöla 560218-0790. Fyrir millifærslur sendið kvittun á info@berserkir-axarkast.is með fullu nafni (eða kennitölu) keppanda sem skýringu.
Go to english version