Haustmót Berserkja

Haustmót Berserkja í axarkasti verður haldið 24. september 2023 hjá Berserkjum í Hjallahrauni 9 kl 14:00.

Keppnisgjaldið er 8.000 kr. og eru þrjár æfingar innifaldar í því. Æfingar eru á sunnudögum kl 12-14 frá og með 20. ágúst. Það er öllum velkomið að taka þátt. Þeir sem komast ekki á æfingar á sunnudögum geta haft samband um að koma á öðrum tímum á æfingu.

Hægt er að greiða keppnisgjaldið á æfingakvöldunum eða millifæra á reikning 0133-26-013699 og kennitöla 560218-0790. Fyrir millifærslur sendið kvittun á info@berserkir-axarkast.is með fullu nafni (eða kennitölu) keppanda sem skýringu.

Go to english version